16.6.06

Ja, hérna.

Ástæðan fyrir þessari færslu er aðallega sú að bloggheimar virðast vera alveg steindauðir þessa dagana, þ.a. ég ákvað að taka af skarið.

Það er hásumar og verra veður en oftast í janúar...eins gott að ég verði á Rimini nk. miðvikudagskvöld...

Sleater-Kinney þann 4.6 sl: "By Default" besta gigg ársins, Stooges auðvitað héngu í rassgatinu - EN - maður verður að gefa NÝJA og FERSKA liðinu séns...er þaggi?

ESG var líka stórkostlegur bónus, "flóttamenn" frá Trópík-hátíðinni sem Ítalski snillingurinn á Stúdentakjallaranum nær vonandi að kæra sig í gegnum fyrir að láta Talíbanana (hóst...hóst, íslenskar löggur að "framfylgja trúarlögum" (haaaa?!? Erum við stödd í Íran? Færeyjum (þeir bönnuðu nú "Da Vinci" (ef ég hefði verið fors(ætisráðerra)eti hefði ég bannað hana sökum óumræðinlegra leiðinda sem kvikmynd (ó nei! allt of margir svigar))))))))))))

Nei, hvar var ég...

Allavega:

Dr. Gunni bara kastaði á glæ 20+ árum af plötu(CD)söfnun. Hann seldi mér m.a.s. Gissur (sjá t.d. þessa færslu þann 7. júli, frá því fyrir ca. 4 árum síðan)...líklega eitt af örfáum eintökum sem ekki fóru á haugana! Besta var þó 100 kall pr. prómóeintök. 7 manns rifust um Decemberists-eintakið. Ég ætla nú bara rétt að vona að meistarinn hafi staðið við "hótunina" um að prútta af alefli.

Mikið - RRROOOSSSSALLLEGGGA - eiga menn eftir að sjá eftir sumu, segi ég nú bara.

Gunna konan mín er að reyna að finna hvað 2ja ára brúðkaupsafmæli heitir (1 ár = pappírsbrúðkap) - getur einhver hjálpað okkur. Við erum reyndar aðallega að halda upp á 10-ár-síðan-við-byrjuðum-saman ammæli 3. júlí. Á Rimini. Á gondólum, eða eitthvað álíka geðveikt...held þetta verði besta fríið okkar EVER!

Ítalía...gotta luvvit.

P.S. 2 ár er víst bómullarbrúðkaup.

Ef við hefðum gift okkur daginn sem við kynntumst - fyrir 10 árum - ættum við svo Tinbrúðkaup.

7 Comments:

At 9:54 PM, Anonymous Anonymous said...

ohhhh rimini, þvílík snilld

 
At 10:04 PM, Anonymous Anonymous said...

hlusta á Gissur,
horfa á Bachelorette,
svipuð reynsla

 
At 5:09 PM, Blogger Ingimar said...

góða ferð

 
At 11:20 PM, Blogger Doddi said...

Til hamingju með bómullarbrúðkaupsafmælið og góða ferð.

 
At 2:37 PM, Blogger Oskar Petur said...

Jú, það passar. Við Gunna vorum að koma frá Rimini á Ítalíu (varstu ekki einu sinni þar?) og það var alveg geðveikt. Geeeðveikt!!! Rimini er sko ekkert Benidorm-sólarstrandar-neitt, heldur alvöru ítölsk borg með gömlum miðbæ og skemmtilegum kúltur. Svo er Emilia-Romagna líka kölluð matarkista Ítalíu og eru það engar ýkjur.

Býrð þú ennþá á Eyrarbakka?

 
At 5:46 AM, Blogger raybanoutlet001 said...

polo ralph lauren
nike air force 1
longchamp outlet
prada outlet
michael kors outlet
nike shoes
nike factory outlet
ray ban sunglasses outlet
kate spade sale
christian louboutin shoes

 
At 2:02 AM, Blogger jeje said...

michael kors handbags
nike huarache
air force ones
kobe sneakers
adidas eqt support adv
adidas gazelle
nike mercurial
ferragamo belt
nike huarache sale
patriots jerseys

 

Post a Comment

<< Home