17.11.05

Alveg er það lifandis skelfingar djöfullega með ólíkindum hversu brjálæðislega góð mynd er komin í bíóin þessa dagana!

Nei, ég er ekki að tala um neina kvikmyndahátíðareftirlegukind, heldur nýjasta - og ef ekki besta - afurð Joss Whedon, Serenity. Ég verð að segja að ég er nánast orðlaus, hvernig er hægt að búa til svo stóra mynd úr svo litlu, enginn budget, óþekktir leikarar, ... Sjónvarp hefur upprisið sem hið nýja afl í kvikmyndagerð - með massíft vel skrifað stöff að vopni. Það þarf í raun ekkert annað en gott skript til að bera upp kvikmynd, þetta hefur sýnt sig í gegnum aldirnar!

Besta mynd ársins, ásamt Paha Maa auðvitað.

Ég pantaði 2 Buffy, 2 Angel og 1 Firefly season á Amazon í gær. Þetta mun duga öll Jólin og gott betur en það. Joss Whedon is my master now...

Mikið rosalega hlakka ég til að sjá White Stripes, maður...NOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOTTTTTT!!!!!!!!!!!!!!!!! Þetta Kók-auglýsandi pakk getur troðist um í Laugardalshöllinni og átt sig fyrir mér.

Ne-heei, þá verður nú meira stuð á Bob Log III á Grand Rokk, bestu rokkbúllu bæjarins.

5 Comments:

At 12:42 AM, Blogger Doddi said...

Serenity, já, fengið alveg afbragðsdóma. Var ekki bara eitt síson af Firefly?

 
At 8:30 AM, Blogger Oskar Petur said...

Jöbb, Pælot + 12 þættir, var cancelað í miðju sísoni.

Alveg hreinasti eðall, eins og myndin.

 
At 1:00 PM, Blogger Sigga said...

Ðððekk, var ekki búin að lesa þetta um kókið og white stripes, eins gott að mar fór ekki á þessa tónleika.
They´re dead to me.

 
At 3:00 AM, Anonymous Anonymous said...

Ok Óskar.
Áður en þú ferð að tala um að eitthvað sjónvarpsefni sé best þá skaltu tékka á Chris Morris, hann gerði seríur eins og Jam, Brass Eye, The Day Today og fleira... Hans stöff tekur allt stöff í feitan og ósmurðan endaþarm.

 
At 8:49 AM, Blogger Oskar Petur said...

Ég er nú einmitt að skanna fleiri þætti þessa dagana, Benni - Alan Partridge er nú hluti af rjómanum í BBC-gríninu, helvíti góð sería sem þú lánaðir mér. Fæ kannski þessa þætti, sem þú talar um, lánaða seinna.

Svo eru þessir "Prisoner"-þættir alveg magnaðir, svona kaldastríðsparanoju/Pre-Twin Peaks súrrealískt stuð. Þessir þættir eru frá 1967 og eru alveg gríðarlega mikið á undan sinni samtíð.

 

Post a Comment

<< Home