2.7.07

Ca. eitt blogg á mánuði síðan um áramót...er það ekki andsk. nóg?!?

Ég er að fara á Hornstrandir eftir viku. Verð í viku.

Ég er að fara til S-Kalifornínu eftir 3 1/2 viku. Verð í 3 1/2 viku.

Næs symmetría í þessu, þaggi?

Mun að sjálfsögðu lifa algjöru hellisbúalífi á Hornströndum - þurrfæði, alvöru bakpoki, tjald og læti. Verðum ca. 8 saman. Plís, vera svona veður þá!!

Kalifornía er auðvitað garanterað blússandi heitt, sól og læti. Comic-Con í San Diegó verður þar fyrst á dagskrá. "Nerd-Watching" dauðans, djöfull verður gaman að því! Heroes-liðið verður víst þarna útumallt, pródúsentar og leikarar, þ.á.m. Japanski Hiroinn, eini og sanni.

Death Valley, Arizona, LA (helst Minutemen-slóðir í San Pedro líka), Sideways-túr, Frisco o.fl. líka á lauslegu plani. Rússíbana-óverdós í Magic Mountain og svo VERÐ ég að fá að skjóta úr einhverjum hillbillía-ofurhernaðarbyssum líka - fékk forsmekkinn af þessu á Hawaii um árið (Magnum og svona), fæ vonandi að prófa eitthvað stærra.

Hef ekkert séð af tónleikum síðan í vetur (skýrir e.t.v. strjál blogg...). Bíð eiginlega bara eftir Of Montreal í haust, á Airwaves. Borga 6.000 kallinn gagngert til að sjá þennan ofurmeistara, er nokkuð sama um allt hitt. Nenni ekki á eitthvað troðsl í Kalif. - rekst kannski á eitthvað öndergránd (e.t.v. eftir Comic-Con hitting með einhverjum nördum), annars ekki við miklu að búast frá lélegu So-Cal "pönki", sem tröllríður öllu þarna. Þessi landshluti hefur ekki borið sitt barr síðan örlí eitís, nú eða eftir að Minutemen hættu 1985. Deerhoof tími ég heldur ekki að sjá í einhverju stadium-tjóni, vil bara fá þau til ÍSLANDS!

2 Comments:

At 10:05 PM, Blogger Ingimar said...

Ég bíð bara eftir að of Montreal komi hingað á austuströnd BNA, hlýtur að koma að því. Sá annars Wilco fyrir rúmri viku síðan. Joe Jack Talcum úr Dead Milkmen kemur til Hartford á sunnudaginn og við ætlum til New Hampshire að sjá Okkervil River þarnæstu helgi.

Skemmtu þér vel í Cali.

 
At 1:39 PM, Anonymous Anonymous said...

yeezy
supreme new york
golden goose
kyrie 5 spongebob
steph curry shoes
jordan travis scott
fear of god
golden goose
bape hoodie
kobe basketball shoes

 

Post a Comment

<< Home